Leikstjóri · Handritshöfundur · Framleiðandi · Klippari
Einar Örn Michaelsson, sem einnig starfar undir nafninu Einar Michaelsson, er íslenskur leikstjóri, handritshöfundur, framleiðandi og klippari og annar stofnenda ONET8K. Hann starfar við kvikmyndir, sjónvarp og auglýsingagerð. Meðal leikstjórnarverkefna hans eru Hversdags Gambítur, Pizzasendillinn, Það heyrast engin öskur í kafi, Skrifstofan og Með blóði falla tár. Hann hefur jafnframt unnið við klippingu fyrir RÚV og verið í reglulegu samstarfi við Kiwi auglýsingastofu frá ársbyrjun 2025.
Bakgrunnur
Einar byrjaði ungur að segja sögur með myndavél. Fyrstu verkefnin voru heimagerðar stuttmyndir sem hann tók upp á Nokia-síma með vinum sínum, áður en lítil Canon-myndavél frá afa hans opnaði fleiri möguleika. Árið 2012 stofnaði hann Tjarnaútgáfu og þróaði þar eigin nálgun á kvikmyndagerð með tilraunum í frásögn, klippingu og sjónbrellum.
Með Ríkið árið 2019 og Hvíta línan árið 2021 varð kvikmyndagerðin markvissari, með meiri áherslu á persónur, uppbyggingu og sjónræna frásögn. Hvíta línan var umsóknarmynd hans í Kvikmyndaskóla Íslands, þar sem hann nam handritagerð og leikstjórn frá 2021 til 2023.
Kvikmyndir
Útskriftarmynd Einars, Hversdags Gambítur frá 2023, var unnin í samstarfi við Kára Snæ Halldórsson. Hún er 34 mínútna spennumynd um tvo æskuvini sem reyna að afla fjár til að greiða skuld við glæpaforingja, leikinn af Boga Ágústssyni. Myndin var tekin upp á ellefu tökudögum og vakti athygli í fjölmiðlum.
Á námsárunum skrifaði Einar og leikstýrði einnig hryllingsgrínmyndinni Pizzasendillinn, þar sem dökkur húmor og verklegar brellur voru í fyrirrúmi. Hann leikstýrði síðan Það heyrast engin öskur í kafi eftir sögu Kára. Sú mynd hlaut verðlaun fyrir bestu tæknilegu útfærslu og bestu kvikmyndatöku á Kvikmyndahátíð Framhaldsskólanna árið 2023.
Árið 2024 leikstýrði hann Skrifstofunni, útskriftarmynd vinar síns Víðars, og var jafnframt aðalhandritshöfundur og framleiðandi. Þar stigmagnast hversdagslegt verkefni á skrifstofu í stórfelld átök með ímynduðum vopnum.
Einar skrifaði, leikstýrði og klippti Með blóði falla tár, sem var tekin upp árið 2024 og gefin út árið 2025. Myndin fylgir særðri leigumorðingja sem hringir í móður sína og ungan son eftir blóðug átök. Verkefnið markaði skref í tilfinningalegri frásögn og útfærslu blóðbrellna.
Sjónvarp og auglýsingar
Samhliða eigin kvikmyndagerð hefur Einar unnið við sjónvarp og auglýsingar. Hann var meðal klippara Krakkaskaupsins 2024 og klippti kynningarviðtöl við keppendur Söngvakeppninnar 2025. Hann hefur einnig leikstýrt og klippt sjónvarpsauglýsingu fyrir GOOD GOOD og unnið að kynningarefni fyrir Kópavogsbæ. Í samstarfi við Kiwi auglýsingastofu hefur hann klippt auglýsingar og kynningarefni fyrir meðal annars Húsasmiðjuna, Advania, Securitas, Partýbúðina og fleirri.
ONET8K
Einar og Kári Snær Halldórsson hófu samstarf á námsárunum og byggðu það áfram upp með kvikmyndum, auglýsingum og sjónvarpsverkefnum. Árið 2025 tóku þeir upp nafnið ONET8K og komu sér upp sameiginlegri starfsstöð, áður en fyrirtækið var formlega stofnað árið 2026. Einar starfar þar við hugmyndavinnu, handrit, leikstjórn, framleiðslu og klippingu.
Áherslur í kvikmyndagerð
Hasar, spenna og húmor skipa stóran sess í kvikmyndagerð Einars. Í Hversdags Gambítur fléttast þessir þættir saman í glæpasögu þar sem vinátta tveggja manna reynir á þegar líf þeirra liggur við. Hann hefur einnig sterkan áhuga á hryllingi og verklegum brellum, sem fengu að njóta sín í Pizzasendlinum. Húmorinn birtist gjarnan í sérkennilegum persónum og ýktum aðstæðum, allt frá hættulegum viðskiptum í Hversdags Gambítur til átaka með ímynduðum vopnum í Skrifstofunni. Í Með blóði falla tár kannar hann tilfinningalegri hlið hasarsins, þar sem samtal móður við son sinn verður miðpunktur sögunnar.

